Hólabær reynir í öllu að fara eftir fyrirmælum frá Almannavarnarráði og Menntamálaráðuneyti hverju sinni til að hefta útbreiðslu Covid-19. T.d. er spritt aðgengilegt við alla innganga skólans, í stofum og salernum. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Covid-19. En við minnum á samfélagssáttmálann og að við erum öll almannavarnir.
Nýjar upplýsingar voru að berast vegna samkomutakmarkana: samkomutakmarkanir-og-börn-2.11 2020.pdf
Samfélagssáttmáli
– í okkar höndum
Tryggjum góðan árangur áfram og gerum samfélagssáttmála. Sáttmála sem gildir í vor og sumar og við munum öll virða.
- Þvoum okkur um hendur
- Sprittum hendur
- Munum 2 metra fjarlægð
- Sótthreinsum sameiginlega snertifleti
- Verndum viðkvæma hópa
- Hringjum í heilsugæsluna ef við fáum einkenni
- Tökum áfram sýni
- Virðum sóttkví
- Virðum einangrun
- Veitum áfram góða þjónustu
- Miðlum traustum upplýsingum
- Verum skilningsrík, tillitssöm, kurteis og styðjum hvert annað
Við erum öll almannavarnir – og verðum það áfram