Rauði hópurinn tekur við af Græna hóp. Í ár eru elstu börn leikskólans fædd árið 2016, en einnig eru í hópnum börn fædd á árinu 2017. Áhersla er lögð á leik, útiveru. hópastarf og samverustundir. Auk þess fer hópurinn einu sinni i viku í fimleika og í listasmiðju og a.m.k. tvisvar í íþróttasalinn. Rauði hópurinn deilir forstofu með Græna hóp og starfsmönnum leikskólans. Rými þeirra er á efri hæð leikskólans og samanstendur það af forstofu, stóru leikrými, þar sem hópastarf og samvera fer fram, og tveimur stofum sem bjóða upp á ákveðin verkefni/leik, auk salernisaðstöðu. Börnin borða í matsal grunnskólans. Að öllu jöfnu er einn starfsmaður með hópinn en mikið samstarf er með Græna hóp.